Lög félagsins

Aldin - eldri aðgerðarsinnar gegn loftslagsvá

I. Nafn og markmið

1. gr.

Félagið heitir Aldin - eldri aðgerðarsinnar gegn loftslagsvá.

2. gr.

Tilgangur félagsins er:

  • Að hvetja stjórnvöld, atvinnulíf og almenning til aðgerða gegn aðsteðjandi loftslagsvá með því að vinna að aðgerðum í loftslagsmálum.
  • Að kalla eftir réttlátum umskiptum og að mannréttindi séu virt.

3. gr.

Tilgangi sínum hyggst félagið m.a. ná með því að:

  1. 1.Miðla upplýsingum um loftslagsmál og standa fyrir aðgerðum gegn loftslagsvánni meðal félaga í Aldin og annarra.
  2. 2.Halda fundi, málstofur, hringborðsumræður og aðra viðburði.
  3. 3.Semja og birta efni í fjölmiðlum, hlaðvörpum, samfélagsmiðlum og á öðrum miðlum eftir því sem við á.
  4. 4.Senda inn umsagnir og athugasemdir við lagafrumvörp, reglugerðir og önnur stefnumótandi málefni á vegum stjórnvalda.
  5. 5.Fylgjast með og vekja athygli á því hvernig Íslandi gengur að ná settum markmiðum og standa við skuldbindingar sínar í loftslagsmálum.
  6. 6.Starfa með einstaklingum, samtökum, stofnunum og fyrirtækjum sem styðja og vinna að lausnum í loftslagsmálum.
  7. 7.Koma á framfæri öðru því sem er til þess fallið að vekja athygli á loftslagsmálum og stuðla að aðgerðum gegn aðsteðjandi loftslagsvá.

II. Félagsaðild

4. gr.

Öll þau sem aðhyllast stefnu og markmið félagsins geta gerst félagar.

III. Aðalfundur

5. gr.

Starfstímabil félagsins er almanaksárið. Á aðalfundi skal stjórn gera upp árangur liðins árs. Allir skráðir félagar sem greitt hafa félagsgjald liðins árs hafa kosningarrétt og kjörgengi á aðalfundi. Aðalfund skal halda eigi síðar en 1. maí ár hvert og skal boða til hans með minnst fjögurra vikna fyrirvara með sannanlegum hætti. Aðalfundur er löglegur sé rétt til hans boðað. Einfaldur meirihluti mættra félagsmanna sem greitt hafa félagsgjöld ræður úrslitum mála. Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:

  1. 1.Kosning fundarstjóra og annarra embættismanna fundarins
  2. 2.Skýrsla stjórnar og reikningar lögð fram til samþykktar
  3. 3.Lagabreytingar
  4. 4.Ákvörðun félagsgjalds
  5. 5.Kosning stjórnar og tveggja skoðunarmanna reikninga
  6. 6.Önnur mál

IV. Stjórn félagsins

6. gr.

Stjórn félagsins skal skipuð fimm félagsmönnum, formanni og fjórum meðstjórnendum, kjörnum á aðalfundi til tveggja ára í senn. Einnig er heimilt að kjósa allt að tvo varamenn. Á stofnfundi eru þó tveir meðstjórnendur og einn varamaður kosnir til eins árs. Stjórnin skiptir með sér verkum. Stjórn félagsins fer með málefni félagsins milli aðalfunda. Formaður boðar til funda. Firmaritun er í höndum meirihluta stjórnar.

Óski tíu félagsmenn eða fleiri eftir að boðað verði til félagsfundar ber stjórn að verða við því.

Stjórnin hefur heimild til að taka við styrkjum og gjöfum vegna starfsemi félagsins. Rekstur félagsins skal miðast við að verkefni standi undir sér en leyfilegt er að flytja fjármuni milli einstakra verkefna eftir því sem mögulegt er og þörf krefur.

Stjórnin getur skipað vinnuhópa til að sinna tilteknum verkefnum. Félagsmenn geta að eigin frumkvæði myndað hópa um ákveðin verkefni. Ekki má fara fram með mál í nafni Aldins nema fyrir liggi ákvörðun félagsfundar eða stjórnar.

7. gr.

Tillögur um lagabreytingar og framboð til stjórnar skulu berast stjórn skriflega eigi síðar en tveimur vikum fyrir aðalfund og skulu þær liggja frammi á fundinum. Til að lagabreytingar nái fram að ganga þarf minnst 2/3 hluta greiddra atkvæða.

8. gr.

Rekstrarafgangi af starfsemi félagsins skal varið í samræmi við tilgang þess. Stjórn þiggur ekki laun fyrir störf sín. Félagsmenn njóta ekki fjárhagslegs ávinnings af starfsemi félagsins.

V. Slit félagsins

9. gr.

Ákvörðun um slit félagsins skal taka á aðalfundi með að lágmarki 2/3 atkvæða og renna eignir þess til samfélagsmála samkvæmt ákvörðun slitafundar.

VI. Gildistaka

10. gr.

Lög þessi voru samþykkt á stofnfundi 3. apríl 2025.