
ALDINgegn loftslagsvá
ALDIN er hreyfing fólks sem komið er á þriðja aldursskeiðið. Við höfum notið betri efnislegra lífsgæða en fyrri kynslóðir Íslendinga en þau gæði gætu verið dýru verði keypt. ALDIN hvetur til tafarlausra aðgerða gegn fordæmalausri loftslagsvá.
TILGANGUR FÉLAGSINS
Á hverju ári lofa fyrirtæki og stjórnvöld aðgerðum í loftslagsmálum. Sjaldnast ganga þau eftir.
Aldin hvetur til aðgerða. Við þrýstum á stjórnvöld að framfylgja loftslagsskuldbindingum og drögum fyrirtæki til ábyrgðar á losun sinni — með hvatningu, með því að fylgjast með, með því að styðja jákvæðar aðgerðir og með samtakamætti almennings.
0
Heildarlosun Íslands milljón tonn
0
Landnotkun milljón tonn
0
Stóriðja milljón tonn
0
Vegasamgöngur þúsund tonn
Við beitum okkur fyrir

Endurheimt votlendis
Votlendi bindur verulegan hluta kolefnisforða jarðar sem losnar út í andrúmsloftið þegar mýrum er raskað. Við styðjum endurheimtu mýra á Íslandi og krefjumst þess að stjórnvöld verji og endurreisi þessi mikilvægu vistkerfi.

Orkuskiptum
Íslendingar eru í góðri stöðu til að vera fyrirmynd í orkuskiptum. Við þrýstum á hraðar og réttlátar umbreytingar frá jarðefnaeldsneyti yfir í endurnýjanlegar orkugjafar.

Verndun hafsins
Hafið er lífæð jarðarinnar. Það bindur kolefni, hefur áhrif á veðurfar og nærir milljarða manna. Við berjumst gegn mengun, ofveiði, súrnun og hlýnun hafsins.

Minni matarsóun
Matvælaframleiðsla er ein stærsta uppspretta gróðurhúsalofttegunda á heimsvísu. Við beinum sjónum að minni sóun í matvælaframleiðslu, dreifingu og neyslu. Við skorum á stjórnvöld, fyrirtæki og heimili að grípa til aðgerða.

Líffræðilegri fjölbreyttni
Loftslagsbreytingar og tap á líffræðilegri fjölbreyttni eru órjúfanlega tengd vandamál. Með því að vinna gegn loftslagsbreytingum verndum við vistkerfi og tegundir sem eru lykillinn að heilbrigði jarðarinnar. Við þrýstum á stjórnvöld að grípa til markvissra aðgerða.

Mótmælum
Friðsamleg mótmæli og opinber kröfugerð eru öflug tæki til að hafa áhrif á pólitískan vilja. Við trúum á mátt almennings og styðjum þá sem standa upp og krefjast tafarlausra aðgerða í loftslagsmálum.