Íslenskt landslag

Kynning á ALDIN

Við berum ábyrgð — á loftslaginu, á framtíðinni, á komandi kynslóðum.

Aldin, hver erum við?

  • Við erum "eldri borgarar" og enn í fullu fjöri
  • Við eigum starfsævi að baki, erum hokin af lífreynslu
  • Við erum þekkingarsamfélag, þekkjum stjórnkerfi, viðskiptalífið, fræðin og boðleiðirnar
  • Fengum tækifæri sem foreldrum okkar buðust ekki
  • Ríkasta kynslóðin sem gengið hefur á jörðinni (The Economist)
  • Reynslan og aldurinn hefur kennt okkur að það er hægt að snúa þróuninni við
Aldin fundur

Áherslur félagsins

1

Þrýsta á stjórnvöld um aðgerðir í loftslagsmálum sem miða að kolefnahlutleysi og verndun vistkerfa fyrir komandi kynslóðir.

2

Skynsamleg notkun vistvænna orkugjafa og breytt forgangsröðun í nýtingu raforku til að ná fram skjótari markmiðum í loftslagsmálum.

3

Miðla þekkingu til stjórnvalda, frjálsra félagasamtaka og einstaklinga.

4

Verkefni sem skila skjótum árangri, eru einföld í framkvæmd og að sem flestir, ungir sem aldnir, sjái sér hag í að vera með.

5

Endurheimt votlendis, hafvernd, líffræðilegur fjölbreytileiki, hringrásarhagkerfi.

Opinn félagsskapur

  • Mánaðarlegir fundir með fagfólki og vísindamönnum sem þekkja til margvíslegra hliða loftslagsvandans
  • Stjórn kosin árlega og unnið í starfshópum
  • Áhersla á umræður, virkni og sýnileika
  • Aðgerðir sem byggja á fræðilegum staðreyndum — ekki bara orð
Opinn félagsskapur fundur
Íslenskt landslag

Tengsl og samstarf við önnur umhverfissamtök

  • Ungir umhverfissinnar
  • Landvernd
  • Systursamtök á Norðurlöndum
  • Gray for green
  • Umhverfisþing
  • Loftslagsdagur
  • Aldin um allt land

Samstarf við fræðasamfélagið

  • Breytingar á veðurfari, vatnafari og ástandi sjávar
  • Hafstraumar – AMOC
  • Breytingar á lagaumhverfi og tilskipunum ESB
  • Nýjustu rannsóknir á jarðvegi, möguleikum á endurheimt CO2 og fl.
  • Þátttaka á fræðaþingum og málþingum, s.s. Skólamáltíðir og loftslagsmál
Fræðasamstarf

Græna gangan - sumardaginn fyrsta

Aldin hefur staðið fyrir málþingum og ráðstefnum með stjórnmálamönnum og fræðimönnum, svo sem fyrir kosningar til þings og sveitastjórna.

Á sumardaginn fyrsta 23. apríl 2026 stóð Aldin fyrir grænum palli í norræna húsinu þar sem forkólfar stjórnmálaflokkanna voru spurðir spjörunum úr um stefnu og áætlanir í umhverfis- og loftslagsmálum.

Græni pallurinn
Aktívismi

Aktívismi, málþing, umsagnir, greinaskrif, beinn og óbeinn þrýstingur

ALDIN gegn loftslagsvá hlýtur tilnefningu til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2025

ALDIN er hreyfing fólks sem komið er á þriðja aldursskeiðið. Hún er sú fyrsta sinnar tegundar á Íslandi og hefur á fáeinum árum orðið áberandi meðal umhverfishreyfinga í landinu, sem eru fáar í samanburði við hin norrænu löndin. Hreyfingin er öflug rödd í þjóðmálaumræðunni og hafa meðlimir hennar ritað greinar, skipulagt umræðufundi, skrifað yfirlýsingar um lagafrumvörp og stefnumótun yfirvalda og verið virkir á samfélagsmiðlum. ALDIN hefur einkum beint sjónum að loftslagsvánni en lætur sig einnig varða náttúruvernd og fleiri umhverfismál.

Nafn hreyfingarinnar varð fyrir valinu vegna tvíræðrar merkingar orðsins. Þannig vísar það til aldurs meðlimanna en jafnframt til þess að líta megi á reynslu þeirra sem ávöxt langrar ævi, sem vonandi megi nýta til góðs. Margir af meðlimum ALDINs hafa verið virkir í umhverfis- og náttúruverndarstarfi um árabil og hefur hreyfingin gefið þeim færi á að láta raddir sínar heyrast þrátt fyrir að vera ekki lengur á vinnumarkaði.

Ungt fólk hefur löngum verið meira áberandi í baráttunni gegn loftslagsvá en virðulegt, gráhært fólk. ALDIN gegnir mikilvægu hlutverki af því að aldur og starfsreynsla meðlimanna veitir hreyfingunni ákveðið vægi innan samfélagsins, sem hún nýtir öllum til góða. Um leið vill ALDIN leggja sitt af mörkum til að tryggja að allir hópar samfélagsins eigi sér málsvara í þessum efnum.

Fréttin er birt á vefnum Norrænt samstarf https://www.norden.org. Grønne Nabofællesskaber frá Danmörku hlaut Umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs 2025.

ALDIN meðlimir að störfum
Við berum ábyrgð

Söngur Aldins

Jörðin mín og jörðin þín

jörðin alls sem lifir

gæti verið væn og fín

(og) vakað öllu yfir

 

Hana leikum grimmt og grátt

gráðugt allt við notum

verst er ef hún verður brátt

veikt að niðurlotum

Þessu viljum vinna mót

vitur mjög og Aldin

ger´ á misgjörð bragarbót

baráttuanda haldin

Jörðin mín og jörðin þín

jörðin alls sem lifir

verði aftur væn og fín

(og) vakin öllu yfir

Texti eftir Luðvig Guðmundsson, lag Vísur VatnsendaRósu - Augun mín og augun þín.

Margt framundan

Takk fyrir!!

Gerast félagi