November 3, 2026
Aldin - félagsfundur á fimmtudaginn
Aldin félagar, nóvemberfundur Aldins verður haldinn fimmtudaginn 5. nóvember í Neskirkju - að vanda klukkan tíu.
Dagskráin er mjög áhugaverð og viðamikil.
Í fyrsta lagi kynnumst við nýsköpunar- og hringrásarfyrirtæki sem er í þróun á Suðurlandi og heitir Orkidea. Sveinn Aðalsteinsson framkvæmdastjóri kemur og segir okkur frá. Þarna er um nýsköpunarverkefni að ræða.
Í öðru lagi fáum við gest sem er vel kunnur. Það er Sigurður Reynir Gíslason verkfræðingur sem er heilinn á bak við Carbfix dæmið sem felst í því að fanga koltvísýring í andrúmsloftinu og farga í berglögum undir fótum okkar. Sigurður segir okkur frá því og rekur þetta á hnattræna vísu.
Þá er að geta þess að starfshóparnir okkar hafa verið ötulir.
Næringarhópurinn fór í vettvangsferð á Suðurnesjum til að kynna sér framleiðslu og dreifingu á skólamáltíðum frá einu fyrirtæki þar og fáum vonandi að heyra frá þeim.
Þá var loftslagshópur kallaður saman til að skila áliti á loftslagsfrumvarpi ríkisstjórnarinnar sem var endurflutt núna á þinginu. Umsögnin er komin á aldnir.is.
Búvörusamningur: Svo eru líka komnar hugleiðingar og bollaleggingar um framlengingu á búvörusamningi sem stendur fyrir dyrum og hefur auðvitað víðtæk loftslagsáhrif.
Hafhópurinn sendi stjórn eftirfarandi skeyti: Fundargerð frá 8.október s.l.
- Gestur fundarins var Sandra Brá Jóhannsdóttir, framkv.stj. Úrvinnslusjóðs.
- Samantekt Helga Jenssonar, félaga í hópnum, um meðhöndlun og förgun veiðafæraúrgangs. Þetta er málefni sem hópurinn hefur verið að leggja áherslu á, meðal annars með heimsókn til Hampiðjunnar á vordögum og fengið fagfólk til þekkingarmiðlunar og umræðu á fund hópsins.
Munið svo eftir kaffisjóðnum og hlökkum til að sjá ykkur öll.