November 2, 2026
Aðgerðaáætlun landbúnaðarstefnu
Í ágúst 2024 birti stjórnarráðið aðgerðaráætlun (til 5 ára) við Landbúnaðarstefnu til 2040. Hér er ýmislegt að finna sem vekur athygli Aldins.
Búvörusamningar eru til 10 ára og gilda til ársins 2026. Stuðningskerfi sem þar er skilgreint stuðlar að mjög litlu leyti að samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda og stærstur hluti stuðnings er til sauðfjár- og nautgriparæktar sem losa mest sökum iðra- gerjunar og umfangs þeirra hérlendis. Hefjast þarf handa við að þróa stuðningskerfi sem hvetur til samdráttar í losun gróðurhúsalofttegunda frá landbúnaði ásamt aukinni bindingu. Nánar er fjallað um heildarendurskoðun stuðningskerfis í kafla 10.
Nokkur stefnumið sem varða starfsvið Aldins:
• Hvati verði skapaður innan stuðningskerfis landbúnaðarins til að auðvelda bændum að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og auka bindingu í gróðri og jarðvegi.
• Mótaður verði rammi um framleiðslu vottaðra kolefniseininga í landbúnaði og land notkun.
• Aukið verði við rannsóknir og vöktun á áhrifum íslensks landbúnaðar á loftslag og aðlögunar hans að loftslagsbreytingum
• Landnotkun í landbúnaði tryggi verndun og endurheimt viðkvæmra og mikilvægra tegunda og vistkerfa til að stuðla að líffræðilegri fjölbreytni með vísindi vistkerfis- nálgunar að leiðarljósi.
• Sérstaklega verði hugað að leiðum til að auðvelda neytendum að velja vörur eftir eigin gildum og afstöðu til landbúnaðarframleiðslu, m.a. með bættum upplýsingum um uppruna, innihald og kolefnisspor landbúnaðarafurða.
• Stuðningur hins opinbera styrki og fjölgi stoðum landbúnaðar á grunni sjálfbærrar nýtingar í þágu loftslagsmála, umhverfis- og náttúruverndar og fjölbreytni í ræktun.
• Áherslur í styrkjakerfi landbúnaðar styðji við fjölbreyttari framleiðslu landbúnaðar- afurða og aukin áhersla verði lögð á jarðrækt og aðra landnýtingu, skógrækt, endur- heimt vistkerfa, náttúruvernd og landvörslu á grunni efnahagslegrar, félags- legrar og umhverfislegrar sjálfbærni.
• Við ráðstöfun opinbers fjár eða við aðrar aðgerðir til að efla stoðir landbúnaðar verði sérstaklega hugað að því að auðvelda kynslóðaskipti og nýliðun.
• Stuðningur við landbúnað skapi stöðugan og traustan grundvöll fyrir innlenda matvælaframleiðslu og fæðuöryggi þjóðarinnar.