Góðir félagar. Það var mér sérstök ánægja að ávarpa ykkur hér í dag og greina frá því, að félagsskap okkar hefur vaxið ásmegin, eflst og dafnað með á síðastliðnu ári. Starfsárið sem nú er að baki var í senn gjöfult, kraftmikið og afar farsælt.
Lykilþátturinn: Samvinna og dreifð ábyrgð
Ef ég ætti að nefna þann lykilþátt sem öðru fremur einkennir velgengni Aldins, þá er það hve margir koma að verkefnum okkar. Hér er ábyrgðinni deilt á margar herðar og samstarfið er með hreinum ágætum. Við skiptum með okkur verkum og félagar eru jafnan boðnir og búnir að taka þátt í þeim verkefnum sem til okkar friðar heyra. Þetta víðtæka, lifandi og lýðræðislega starfsmódel er í raun skýrasta megineinkenni félagsskaparins í dag.
Félagafjöldinn telur nu á annað hundrað manns og fjölgar stöðugt. Samhliða þessum vexti hefur fundasókn glæðst jafnt og þétt eftir því sem liðið hefur á árið; fleiri og fleiri mæta til leiks til að miðla af reynslu sinni og dýpka umræðuna.
Rétt fyrir aðalfund fór í loftið vefur okkar, aldnir.is sem Dagný Halldórsdóttir á aðal heiður af! Takk fyrir það.
Mánaðarlegir fundir og húsaskjól
Fundir okkar hafa verið haldnir mánaðarlega, eins og þið flest vitið, og hafa þeir ævinlega reynst einstaklega fróðlegir og hvetjandi. Fyrsta fimmtudag í hverjum mánuði hittumst við í Neskirkju. Við færum kirkjunni og forsvarsmönnum hennar þakkir fyrir að veita okkur húsaskjól gegn mjög hóflegu gjaldi.
Það má stundum til sanns vegar færa að metnaðurinn í dagskrárgerð og gestaboðum hafi farið fram úr sér - á ákvæðan hátt. Við höfum notið lærðra fyrirlestra, vandaðra fræðsluerinda og glæsilegra kynninga frá afar frambærilegum gestum sem hafa verið boðnir og búnir að sækja okkur heim. Raddir hafa raunar heyrst á meðal félagsmanna að rýmka mætti tímann fyrir hið óformlega kaffispjall á fundunum. En á móti má segja að hin metnaðarfulla dagskrá sé eitt helsta aðalsmerki Aldins.
„Það var okkur óvæntur en dýrmætur heiður á árinu að hljóta tilnefningu til Umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs. Þótt einhverjir kunni að telja það fullsnemmt á ferli félagsins til að teljast fyllilega verðskuldað, er það ótvíræð staðfesting á því að orðspor Aldins fer víða og eftir því er tekið.“
Drifkrafturinn: Öflugir starfshópar
Annar einkennandi þáttur í starfsemi liðins árs að æ fleiri starfshópar innan félagsins hafa tekið til starfa og sýnt fádæma kraft og frumkvæði. Þessir hópar eru hjarta og taugakerfi starfsins:
Aðgerðahópurinn
Hér fer það fólk sem er reiðubúið að láta til skarar skríða, efna til útrásar eða beinna kynninga á opinberum vettvangi. Sem dæmi má nefna þegar hópurinn dreifði boðskap okkar á matarmarkaðnum í Hörpu og vakti verðskuldaða athygli á samhengi fæðu, loftslags og almennra umhverfismála. Félagar í aðgerðarhópi héldu utan um Grænan pall í Norræna húsinu ásamt UU, Danfríður, Sigurbjörg og Sigrún Björns. Fæðughópurinn hefur einnig verið stórtækur!
Fæðuhópurinn
Sá hópur stóð fyrir rúmu ári fyrir afar merkilegri og áhrifamikilli matarráðstefnu um skólamáltíðir í nánu samstarfi við Háskóla Íslands. Félagar í þeim hópi fylgdu málinu eftir af mikilli elju með greinaskrifum sem vöktu víðtæka athygli í samfélaginu.
Votlendishópurinn
Þessi hópur hefur farið í kynnisferðir, tekið þessi mikilvægu málefni föstum tökum frá grunni og séð til þess að halda okkur hinum upplýstum og vel með á nótunum um verndun og endurheimt votlendis.
Orkuhópurinn
Hópurinn hefur verið duglegur og sent frá sér margvíslegar greinargerðir og umsagnir í samráðsgátt stjórnvalda sem og til þingnefnda sem haft hafa mál er okkur tengjast til umfjöllunar. Þá höfum við sótt fundi með ráðamönnum. Orkuhópurinn gekk nýlega á fund forsvarsmanna Landsnets, Landsvirkjunar og umhverfisráðherra til þess að láta skoðanir okkar í ljós varðandi hag almennings og smáfyrirtækja við að nýta orku í þeirra eigin þágu.
Hafhópurinn
Þessi hópur fór af stað á árinu og hefur skipulagt reglubundna fundi og kynnisferðir, ásamt því að standa fyrir skipulögðum fundum á okkar vegum. Það hefur verið einstaklega ánægjulegt að horfa á þann hóp vaxa og þroskast jafnt og þétt.
Ferðir, útrás og grænt samstarf
Auk þess innra starfs hefur Aldin staðið fyrir ferðum félagsmanna út fyrir borgarmörkin. Nú síðast fór alldrjúgur hópur undir öruggri forystu þeirra Árna Bragasonar og Tryggva Felixsonar í Gunnarsholt, þar sem félagar fengu ítarlega og góða kynningu á starfseminni. Þátttaka var með ágætum og fínn rómur gerður að þeirri ferð.
Allt er þetta skýr vísbending um að Aldin hefur náð að festa sig rækilega í sessi. Og ekki nóg með það: borist hafa óskir um að fulltrúar okkar sæki heim byggðir út á land til að kynna starfsemina, og hefur verið brugðist við þeim kallinu.
Við höfum vitaskuld einnig átt í nánu samstarfi við mörg önnur umhverfisverndarfélög og náttúruvini, og þar ber hæst Grænu gönguna sem haldin var á sumardaginn fyrsta. Aldin skipaði stórt hlutverk við að skipuleggja og stýra viðburðum þess dags í samvinnu við önnur samtök. Græna gangan heppnaðist einstaklega vel. Það var á okkar ábyrgð að sjá um frambjóðendafund í Norræna húsinu í samstarfi við ungliðana, en við komum að skipulagningu Grænu göngunnar með margvíslegum hætti og lögðum þar mikið til málanna, bæði í undirbúningsferlinu og við framkvæmdina á sjálfan daginn. Stór og samhentur hópur félagsmanna okkar kom að göngunni með einum eða öðrum hætti.
Menning, listir og innra líf
Aldin hefur sannarlega náð í gegn. Ég vil nefna að stjórnin hefur haft á sínum snærum öflugt fólk sem tekið hefur að sér sérstök verkefni, svo sem að undirbúa nýja heimasíðu fyrir félagið og yrkja söngtexta okkar.
Þá vil ég endilega geta þess að innan Aldins starfar kór, sem sannarlega sló í gegn á loftslagsdeginum á síðasta ári, þar sem þau sungu og komu fram með áberandi, fallegum og áhrifamiklum hætti. Það er einmitt eitt af því sem gefur lífinu og félagsstarfinu gildi, eins og maður segir, að Aldin skuli geta tekið þátt í verkefnum sem þessum með svo fjölbreyttum, metnaðarfullum, listrænum og glæsilegum hætti.
Fjármál af raunsæi og sveigjanleika
Í þessu samhengi vil ég geta þess að við höfum náð þokkalegum árangri í að afla fjár. Fólk á okkar vegum hefur verið reiðubúið að leggja talsvert á sig til þess að smala í kassann frá fyrirtækjum og ber að þakka það átak. Sólveig Baldursdóttir hefur farið framarlega þar. Stærsta einstaka styrkinn fengum við frá umhverfisráðuneytinu, sem nam einni milljón króna, en við höfum eignast fleiri styrki sem aflað hefur verið með harðfylgi og lipurri elju – eða „venjulegum sníkjum“ eins og við köllum það stundum í gamni.
Ársreikningar félagsins geyma ekki stórtíðindi; þeir eru mjög skýrir, hér er ekki um stórar eða háar upphæðir að ræða og engin rekstrarvandræði á ferð. Fjárhagur félagsins, þótt hann sé hóflegur, er að minnsta kosti réttu megin við núllið. Fyrir vikið getum við lagt okkar af mörkum til samstarfs við önnur félög náttúruvina þegar kemur að stórum viðburðum eins og Grænu göngunni, þar sem við gátum stutt við starfið á útgjaldahliðinni – sem er okkur að sjálfsögðu mikið stolt.
Við þurfum að sækja í okkur veðrið hvað varðar fjáröflun. Félagar okkar hafa sýnt mikinn vilja til að greiða árgjöldin, sem vonandi eru engum ofviða. Við höfum líka sýnt ríkan sveigjanleika með árgjöldin; við ákváðum strax í upphafi að það skyldi ekki vera fortakslaus skylda fyrir þátttöku í félaginu að borga árgjald – greiðslan er valkvæð.
Einnig ákváðum við að ef fleiri en einn félagsmaður væri á sama heimili, væri valkvætt að borga einfalt árgjald frekar en tvöfalt.
Með þessu sýnum við sveigjanleika og bjóðum fólk velkomið. Fjárhagur á aldrei að verða neinum að fótakefli við að taka þátt í starfi Aldins. Það hefur verið markmið félagsins frá fyrsta degi að allir geti verið með. Það er hins vegar afar mikilvægt að þeir sem aflögufærir eru greiði árgjaldið og sjái þannig til þess að félagið eigi fyrir aðgerðum eða sérstöku átaki þegar þörf krefur. Að öðru leyti verður að segjast eins og er, að félagar okkar eru einstaklega skilvísir, gjafmildir og rausnarlegir í garð félagsins.
Stjórnarstarf, aldursmörk og framtíðin
Hlutverk okkar í stjórnunni hefur verið að skipta með okkur verkum eftir föngum og getu. Oft é það svo að utanaðkomandi aðilar sem leita samstarfs snúa sér til formanns, en það hefur verið einstaklega auðvelt að deila ábyrgð og verkefnum á fleiri hendur. Stjórnin hefur, að mati formanns, verið mjög samhent og vel vinnandi, og það hefur verið einstaklega ánægjulegt að sjá hve reiðubúið fólk er að taka að sér og axla ábyrgð á fjölmörgum verkefnum.
Nú er það svo að fyrir þennan aðalfund bjóða sig fram til áframhaldandi setu allir þeir sem áður sátu í stjórninni. Sum voru kjörin til tveggja ára á sínum tíma, önnur til eins árs en bjóða sig fram á ný. Það blasir því við á þessum fundi og er okkur fagnaðarefni að við staðfestum áframhaldandi samstarf þessarar ágætu stjórnar með einhuga lófataki fundargesta.
Það er oft spurt hverjir séu í raun gjaldgengir í Aldin, og hvaða aldri maður þurfi að hafa náð til að ganga til liðs við okkur. Þar kemur stundum hik á menn, enda ekkert einfalt eða einhlítt svar við því. Við segjum einfaldlega: Þeir sem vilja vinna og starfa í félaginu eru hjartanlega velkomnir. Og ef svo fer að fólk vex upp úr og fer yfir aldursmörk í Félagi ungra umhverfisverndarsinna, þá er kjörinn vettvangur að íhuga að sækja um inngöngu hjá okkur í Aldin.
Að svo mæltu þakka ég fyrir frábært og ómetanlegt samstarf á árinu. Við höldum glaðbeitt og full bjartsýni inn í nýtt starfsár að loknum þessum farsæla aðalfundi. Þetta er það helsta sem á daga hefur drifið hjá félaginu á liðnu ári, og ég þakka það traust að velja mig til formanns.
Góðar stundir. Stefán Jón Hafstein